> ## Documentation Index
> Fetch the complete documentation index at: https://docs.onewebsite.is/llms.txt
> Use this file to discover all available pages before exploring further.

# Yfirlit yfir stjórnborð

> Kynning á aðalhlutum stjórnborðs OneWebsite

## Aðalvalmyndin

Vinstra megin í stjórnborðinu sérðu valmynd með helstu hlutum vefsins. Hvað birtist fer eftir því hvaða einingar eru virkar fyrir fyrirtækið þitt.

| Hluti                   | Hvað gerir hann?          |
| ----------------------- | ------------------------- |
| **Stjórnborð**          | Yfirlit og flýtileiðir    |
| **Blogg**               | Fréttir og greinar        |
| **Síður**               | Venjulegar síður á vefnum |
| **Þjónusta**            | Flokkar og þjónustur      |
| **Starfsfólk**          | Starfsmannalisti og síður |
| **Bókanir**             | Tímabókanir og stillingar |
| **Almennar stillingar** | Fyrirtæki, litir, logo    |
| **Valmynd**             | Valmynd vefsins           |

## Efni og breytingar

Flest efni er breytt á tvo vegu:

1. **Almennt** — titill, myndir, birting, leitarvélaupplýsingar
2. **Efnishlutar** — visual editor þar sem þú byggir síðuna með blokkum

## Tungumál

Ef vefurinn styður fleiri en eitt tungumál sérðu tungumálaflipa þegar þú breytir efni. Sjálfgefið tungumál stillir þú undir **Stillingar**.

<Tip>
  Byrjaðu á að fylla út [almennar stillingar](/is/02-almennar-stillingar/fyrirtaekjaupplysingar) áður en þú birtir vefinn.
</Tip>

## Leit og flýtileiðir

Notaðu leitarreitinn efst í valmyndinni til að finna síður og aðgerðir. Þú getur líka dregið valmyndina saman til að fá meira pláss á skjánum.
