> ## Documentation Index
> Fetch the complete documentation index at: https://docs.onewebsite.is/llms.txt
> Use this file to discover all available pages before exploring further.

# Einstaklingssíður starfsfólks

> Hvernig á að virkja og stilla síður fyrir hvern starfsmann

## Virkja einstaklingssíður

Fyrst þarf að kveikja á eiginleikanum fyrir allt fyrirtækið:

1. Farðu í **Almennar stillingar**
2. Finndu hlutann **Starfsfólk**
3. Merktu við **Virkja einstaklingssíður starfsfólks**
4. Smelltu á **Vista stillingar**

## Opinber síða per starfsmann

Fyrir hvern starfsmann getur þú valið hvort hann eigi sérstaka síðu:

1. Opnaðu starfsmanninn undir **Starfsfólk**
2. Merktu við **Sýnileg opinber síða**
3. Vista

Ef valið er birtist starfsmaðurinn á vefslóð eins og `/starfsfolk/nafn-starfsmanns`.

## Efni á síðunni

Opnaðu **visual editor** fyrir starfsmanninn til að bæta við efnishlutum — t.d. texta um reynslu, sérhæfingu eða ummæli.

## Starfsmannalisti

Á `/starfsfolk` birtast allir virkir starfsmenn flokkaðir eftir deild. Ef starfsmaður hefur ekki opinbera síðu birtist hann á listanum en ekki með eigin undirsíðu.

<Note>
  Starfsmaður verður að vera merktur **Virkur** til að birtast á vefnum.
</Note>

## Slökkva á síðu

Afmerktu **Sýnileg opinber síða** ef þú vilt að starfsmaður birtist á listanum en ekki með eigin síðu.
